| Oct | NOV | Dec |
| 22 | ||
| 2011 | 2012 | 2013 |
COLLECTED BY
Collection: Wide Crawl started September 2012
Samsara (komið úr palíogsanskrít संसार|संसार) er hringferli endurholdgunar kallað í hindúisma, búddisma, jaínisma og meðal síka. Sá sem er fastur í hringferli endurholdgunar er nefndur samsari.
Orðið samsara þýðir að fljóta eða streyma fram en er oftast þýtt sem endurholdgun, endurfæðing. Hugtakið lýsir þeim skilningi á tilverunni að allt lifandi fæðist, deyi og fæðist að nýju. Í trúarbrögðum af indverskum uppruna er mikilvægt að reyna að losna undan þessu hringferli endurholdgunar og er það nefnt moksha í hindúisma og nirvana/nibbana í búddisma. Eins og alheimurinn hefur þetta hringferli hvorki uppruna né endi og er óendanlegt.
Hindúar trúa því að eftir andlátið flytji sálin (sem nefnd er atman) inn í nýja lífveru. Atman deyr ekki heldur lifir áfram í endalausri röð endurholdgana.
Búddistar trúa ekki á tilveru einstaklingsbundnar sálar, þeir trúa að ópersónubundin meðvitund sé kjarni lífs og það sé þessi meðvitund sem endurholdgist í nýju formi. Það er að segja að einstaklingurinn sem slíkur endurholdgast ekki. Bodhisattva-kenningin innan mahayana-búddisma eru þó undantekning frá þessari hugmynd.